Tilbúin þakíbúð með fallegu útsýni frá þaksvölum.
Bjartar og vel hannaðar íbúðir í rólegu umhverfi. Staðsettar í Villamartin.
Þessi íbúð er á efstu hæð með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum.
Íbúðin er björt og rúmgóð, með fínar svalir sem snúa í vestur og stórar þaksvalir þar sem hægt er að sóla sig allan daginn.
Sameignlegur sundlaugargarður í miðjum kjarnanum ásamt heitum pottum og leiksvæði fyrir börn.
Bílastæði í kjalla fylgir öllum eignum.
Til eru fleiri gerðir af íbúðum, hafðu samband ef þú vilt frekar upplýsingar hér
Stutt í alla þjónustu.
Stutt á þrjá vinsælustu golfvellina.
Tilbúnar í júní 2023
Í oktober 2023 komu í gildi ný lög á Spáni um fasteignasala. Fasteignasalar verða að hafa lokið sérstöku löggildingarnámi á Spáni til að geta selt fasteignir. Annars eru viðskiptin ótryggð með öllu og ólögleg og geta varðað sektum.
Sumareignir hafa brugðist við og fengið þessi réttindi og nú getur þú keypt og selt fasteign í gegnum okkur án áhættu.