** Glæsilegar íbúðir rétt hjá ströndinni í Guardamar **
Guardamar ströndin er mjög eftirsótt og iðar af lífi allt sumarið.
Þessar íbúðir eru ótrúlega fallegar og rúmgóðar.
Eldhúsið er opið út í stofu/alrými, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbgi eru í búðinni og lítill garður eða svalir eftir því íbúðin er staðsett í blokkinni.
Geymsla fylgir hverri íbúð.
Sameiginlegur garður og sundlaug.
Þetta er fjögurra hæða blokk.
Ströndin er örstutt frá kjarnanum og öll þjónusta í göngufæri.
Verðdæmi:
1 hæð: 300.000 evrur
2 hæð: 305.000 evrur
3 hæð: 317.950 evrur
4 hæð: Uppselt
Í oktober 2023 komu í gildi ný lög á Spáni um fasteignasala. Fasteignasalar verða að hafa lokið sérstöku löggildingarnámi á Spáni til að geta selt fasteignir. Annars eru viðskiptin ótryggð með öllu og ólögleg og geta varðað sektum.
Sumareignir hafa brugðist við og fengið þessi réttindi og nú getur þú keypt og selt fasteign í gegnum okkur án áhættu.