* Lúxus íbúðir á efstu hæð - Útsýnið gerist ekki betra *
Glæsileg íbúð á 9 hæð í lokuðum kjarna við ströndina í Punta Prima, betra sjávarútsýni er vandfundið .
Eldhús er opið inní stofu, lítið þvottahús er innaf eldhúsinu. Björt og rúmgóð stofa með útgengi á stórar svalir.
Stór og virkilega flott íbúð.
Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Stutt í alla þjónustu.
Strönd við útganginn á kjarnanum.
Staðsett mjög miðsvæðis á Torrevieja svæðinu.
Síðasta íbúðin með þessu útsýni
Í oktober 2023 komu í gildi ný lög á Spáni um fasteignasala. Fasteignasalar verða að hafa lokið sérstöku löggildingarnámi á Spáni til að geta selt fasteignir. Annars eru viðskiptin ótryggð með öllu og ólögleg og geta varðað sektum.
Sumareignir hafa brugðist við og fengið þessi réttindi og nú getur þú keypt og selt fasteign í gegnum okkur án áhættu.