Eitt besta útsýnið yfir Miðjarðarhafið.
Fallegar íbúðir í Finestrat. Með útsýni yfir strendur Benidorm, frá öllum hæðum af sólríkum veröndunum sem allar snúa í suður.
Íbúðirnar eru bjartar og rúmgóðar. Eldhús í opnu rými með stofunni og útgengi á stóra verönd.
Svefnherbergin eru stór og með fataskápum, útgangur á verönd frá herbergjum. Baðherbergi með sturtu og hita í gólfi.
Heimilistæki ásamt þvottavél, bílastæði og geymsla fylgja öllum íbúðum.
Jarðhæðum fylgir kjallari sem hægt er að nota sem stækkun á íbúðina. Stórir gluggar gefa náttúrulega birtu inn í íbúðina. Frá kjallaranum er gengið út á stóra verönd, þar er einnig lítill garður.
Það eru nokkrar gerðir af íbúðum í blokkunum: Jarðhæðir á tveimur hæðum, íbúðir á fyrstu, annarri, þriðju, fjórðu og Þakíbúðir á fimmtu hæð. Þakíbúðir eru á tveimur hæðum og tengi fyrir heitapott fylgir með.
Hægt er að velja á milli 2, 3 og 4 svefnherbergi og 2 til 3 baðherbergi.
Í þessum kjarna er eitthvað fyrir alla. Það er mikið lagt í þægindi og allsherjar lúxus. Einnig er þeim mikilvægt að það sé aðgengi fyrir alla.
Sameiginlega svæðið býður meðal annars uppá:
Íþróttasvæði fyrir allskonar íþróttir
Sundlaugasvæði með loftræstingu
Sælkeraherbergi
Sundlaugar og nuddpott
Sturtur á útisvæði
Lestrarsvæði
Líkamsræktarstöð
Slökunarsvæði
Samvinnurými
Fjarvinnusvæði
Hjartamælingarstöð
24 stunda eftirlit
Snjallpósthólf
Æfingasvæði fyrir hunda
Ilmgarð
Útsýnisvæði
Leiksvæði fyrir börn
Biofitness æfingasvæði
Í oktober 2023 komu í gildi ný lög á Spáni um fasteignasala. Fasteignasalar verða að hafa lokið sérstöku löggildingarnámi á Spáni til að geta selt fasteignir. Annars eru viðskiptin ótryggð með öllu og ólögleg og geta varðað sektum.
Sumareignir hafa brugðist við og fengið þessi réttindi og nú getur þú keypt og selt fasteign í gegnum okkur án áhættu.