Vorum að fá í sölu þessa snyrtilegu íbúð í Valentino Golf í Villamartin.
Íbúðin er fullbúin húsgögnum og heimilistækjum og því tilbúin til innflutnings.
Íbúðin er með opnu eldhúsi inní stofuna, tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Frá stofunni er aðgengi út á svalir sem snúa í suð austur.
Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.
Það er sameiginleg sundlaug í miðjum kjarnanum með stóru og snyrtilegu plássi til að baða sig í sólinni.
Það er einnig leiksvæði fyrir börn á sameignlegu svæði.
Kjarninn er vel staðsettur, í gögnufæri við mikla þjónustu.
Flott eign og fullkomin til útleigu ef þess er óskað.
Í oktober 2023 komu í gildi ný lög á Spáni um fasteignasala. Fasteignasalar verða að hafa lokið sérstöku löggildingarnámi á Spáni til að geta selt fasteignir. Annars eru viðskiptin ótryggð með öllu og ólögleg og geta varðað sektum.
Sumareignir hafa brugðist við og fengið þessi réttindi og nú getur þú keypt og selt fasteign í gegnum okkur án áhættu.