Einstaklega vel staðsett horníbúð í Valentino golf með suður svölum og þaksvölum.
Íbúðin er á annarri hæð í lyftublokk í vinsælum kjarna þar sem stutt er í alla þjónustu og golf.
Íbúðin hefur sólina svo til allan daginn á svölunum.
Vel búið eldhús opið inní stofu.
Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Suður svalir út frá stofu og hjónaherbergi.
Þaksvalir þar sem hægt er að sóla sig allan daginn. Þar er gasgrill, borð og stólar.
Í sundlaugargarðinum eru 3 sundlaugar, padelvöllur og leikvöllur fyrir börn.
Fullt af veitingastöðum í göngufæri og stutt í golf.
Hafðu samband hér fyrir frekari upplýsingar.