×

Penthouse Villamartin

Verð frá 439.000€ 66.041.614 ISK

Villamartin - Costa Blanca South
  • 3 Svefnherbergi
  • 2 Baðherbergi
  • 83 m2

Þriggja svefnherbergja þakíbúð í Ko Samui- Villamartin
Íbúðin er byggð 2015 snýr í suður og býður upp á stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, verönd í suður og norður og tæplega 100m2 þakverönd! Íbúðin er með glæsilegu útsýni m.a til sjávar.

Íbúðin:
Inn í íbúðinni er stofa og eldhús á vinstri hönd. Héðan hefurðu aðgang að ótrúlegri suðurverönd sem er 33m2. Eldhúsið er í L-formi sem skapar nóg pláss fyrir eldamennsku. Eldhúsið er fullbúið með uppþvottavél, örbylgjuofni, ofni, ísskáp og frystikistu. Við hlið eldhússins er pláss fyrir borðstofuborðið. Þar fyrir utan er stofa og stigi upp á þakverönd.

Öll svefnherbergi og baðherbergi má finna á móti stofu. Tvö svefnherbergjanna deila baðherbergi, en hjónaherbergið er bæði með ensuite og sérverönd. Frá þessari verönd er einnig útsýni til sjávar. Öll svefnherbergin eru með fataskápum og stórum gluggum sem hleypa inn mikilli birtu.

Ef gengið er upp stigann á þakveröndina er þvottahús með þvottavél og geymsluplássi. Þakveröndin er með skyggni, útieldhúsi og nuddpotti.

Íbúðin selst með húsgögnum, loftkælingu og öllum heimilistækjum. Einnig fylgir bílastæði og geymsla í kjallara.

Ennfremur býður Ko Samui upp á frábært sameiginlegt svæði með 2 sundlaugum og yndislegum görðum.

Svæði:
Íbúðin er mjög nálægt allri þjónustu eins og matvöruverslunum, bönkum, veitingastöðum og nokkrum golfvöllum. Hin þekkta La Fuente-verslunarmiðstöð, með miklu úrvali af börum og veitingastöðum, er í stuttri göngufæri. Þú ert líka í stuttri akstursfjarlægð frá ströndinni og frá Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni.

Pantaðu upplýsingar á tölvupósti hér.

 

Í oktober 2023 komu í gildi ný lög á Spáni um fasteignasala. Fasteignasalar verða að hafa lokið sérstöku löggildingarnámi á Spáni til að geta selt fasteignir. Annars eru viðskiptin ótryggð með öllu og ólögleg og geta varðað sektum. 

Sumareignir hafa brugðist við og fengið þessi réttindi og nú getur þú keypt og selt fasteign í gegnum okkur án áhættu. 

 

Fá fleiri upplýsingar
Söluflokkur
Eldri eign
Tilvísunarnúmer
Med1002
Byggingar ár
2015
Orku vottorð
í vinnslu
Upplýsingar
Sundlaug
Sameiginlegt
Garður
Sameiginlegt
Margar eignir í hverju húsi. Hér er aðeins ein af þeim. Flestar nýjar eignir snúa í suður og
Suður
Útsýni
Nice
Bílskur
Bílastæði í bílageymslu
Stærðir
Fermetra stærð eignar
83 m2
Fjarlægðir
Smáatriði
  • Verönd
  • Lyfta
  • Sólstofa
  • Heimilistæki
  • Húsgögn fylgja
  • Loftkæling

Óska eftir frekari upplýsingum um þessa eign

*
*
*
-
Cookie icon

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información aquí.