Mjög fallegar hæðir í Alhama golf með golfvöllinn í göngufæri.
Þessar íbúðir eru á efri hæð með 13 fm svölum og 74 fm þak verönd.
Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Stór stofa með útgang á veröndina.
Fallegt svæði með golfvöllinn og ýmsa þjónustu í göngufæri.
Öllum íbúðum fylgja útieldhús með tengi fyrir uppþvottavél.
Eldhústæki fylgja öllum íbúðum.
Í kjarnanum eru fjórar sundlaugar, þar af ein upphituð.
Í oktober 2023 komu í gildi ný lög á Spáni um fasteignasala. Fasteignasalar verða að hafa lokið sérstöku löggildingarnámi á Spáni til að geta selt fasteignir. Annars eru viðskiptin ótryggð með öllu og ólögleg og geta varðað sektum.
Sumareignir hafa brugðist við og fengið þessi réttindi og nú getur þú keypt og selt fasteign í gegnum okkur án áhættu.